Uppstigningardagur er kirkjudagur aldraðra.

Guðsþjónusta verður í Hjallakirkju í samstarfi við Hjallakirkju kl. 14.
Eftir guðsþjónustuna verður boðið upp á kaffi og “hnallþórur”
sr. Íris Kristjánsdóttir annast um helgihaldið ásamt presti úr Digraneskirkju.

Um kvöldið verður Bílamessa kl. 20 í Digraneskirkju. 
Þá koma félagar úr Fornbílaklúbbnum ásamt vonandi fleiri klúbbum sem hafa sérstakan áhuga á þeim menningararfi þjóðarinnar sem varðveittur er í gömlum bílum.  Öllum er velkomið að koma með áhugaverða bíla til sýnis á bílaplani kirkjunnar, þó svo þeir séu ekki aldurhnignir 🙂
Bílarnir verða til sýnis á bílaplani kirkjunnar og Fornbílaklúbburinn býður upp á gamaldags kirkjukaffi eftir messuna.
Einar Clausen syngur að venju “Áfram veginn í vagninum ek ég”.
sr. Gunnar Sigurjónsson annast um helgihaldið í Bílamessunni.

Allir eru velkomnir.

17. apríl 2012 - 15:00

Sr. Gunnar Sigurjónsson