Fréttir
Gríðarleg spenna á fundi Meme Senior
Það ríkti mikil spenna á fundi Meme Senior í gær enda stóð leikur Íslands gegn Dönum fyrir dyrum á HM í handbolta. Við komum okkur þægilega fyrir í kapellunni og horfðum á leikinn. Það ætlaði bókstaflega allt um koll að keyra undir lokin og vonbrigðin leyndu sér ekki þegar Dönum tókst að sigra okkur á síðustu stundu. Við enduðum svo með stuttri helgistund til þess að róa okkur aðeins niður.
Á næsta fundi förum við í óvissuferð. Eðli málsins samkvæmt er ekki hægt að segja meira um málið að svo stöddu. Síðar í febrúar verður farið á febrúarmót ÆSKR í Vatnaskógi. Mikil spenna er fyrir ferðinni og ætla félagar í Meme group að láta búa til sérmerktar peysur í tilefni ferðarinnar.

