Sunnudagaskóli

Við notum

Tákn með tali

Sunnudagaskólinn er fyrir káta krakka á öllum aldri og er hann starfræktur samhliða guðsþjónustum á sunnudagsmorgnum klukkan 11:00.

Börn að leikVið ætlum að kynnast honum Jesú, besta vini okkar, og heyra margar sögur um hann. Fjöldinn allur af leikbrúðum kíkir í heimsókn til okkar og hjálpar okkur að skilja boðskap Biblíunnar. Þar koma margir gamlir og góðir vinir við sögu eins og t.d. Rebbi Refur, Gulla Gæs, Sólveig, Karl, Axel, Ösp, Guðmundur engill, Mýsla, Músapési, Engilráð andarungi og fleiri.

Við notum Tákn með tali í sunnudagaskólanum í Digraneskirkju. Tákn með tali eða TMT er tjáningarform sem er ætlað börnum sem heyra en eiga við málörðugleika að stríða. Þetta er ekki heilt tungumál eins og íslenska Táknmálið, heldur er TMT alltaf notað samhliða töluðu máli og aðeins lykilorð hverrar setningar eru táknuð. TMT er leið til tjáskipta sem jafnframt örvar málskilning og málvitund barna. Við höfum alltaf notað allskyns heimatilbúnar hreyfingar við söngvana okkar, en núna hefur þeim verið breytt og við notum eingöngu táknin úr TMT. Meira er hægt að fræðast um TMT á heimasíðunni www.tmt.is

Brúðan

Öll börn sem koma í sunnudagaskólann fá Kirkjubók og poka utan um hana. Í bókina fá þau svo límmiða, einn límmiði á hverjum sunnudegi.

Við vonumst til að sjá sem flesta í sunnudagaskólanum í vetur. Endilega hafið samband ef frekari upplýsinga er þörf.


 

 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.