Atburðadagatal - maí 2010

02.05.2010, kl.11:00 Helgihald Messa kl. 11

Prestur: sr. Magnús Björn Björnsson

 

03.05.2010, kl.19:00 Meme movie Sundfundur

Smellum okkur í sund svona þegar sumarið nálgast eins og óð fluga.
 

09.05.2010, kl.11:00 Helgihald Messa kl. 11

Prestur: sr. Yrsa Þórðardóttir

 

09.05.2010, kl.20:00 Helgihald Tómasarmessa í Grensáskirkju kl. 20

Mæðradagurinn

 

10.05.2010, kl.19:00 Meme movie Örverkefni I

Tökum upp eitt örstutt verkefni fyrir sumarið.
 

13.05.2010, kl.20:00 Helgihald Fornbílamessa

Uppstigningardagur 13. maí kl. 20

"Kirkjudagur aldraðra bíla". Fornbílaklúbburinn kemur á gömlum bílum sem stillt verður upp á bílaplani kirkjunnar. Hefðbundin guðsþjónusta verður í Digraneskirkju kl. 20 þar sem Kjartan Sigurjónsson, organisti leikur á orgelið, Einar Clausen syngur í einsöng Vegaljóð (Áfram veginn í vagninum ek ég). sr. Gunnar Sigurjónsson leiðir guðsþjónustuna. Eftir guðsþjónustu býður Fornbílaklúbburinn upp á kaffi og jafnvel einhverjar veitingar og félagar í klúbbnum deila með viðstöddum upplýsingum um bíla sína sem verða til sýnis af þessu tilefni. Allir eru velkomnir.
 

16.05.2010, kl.11:00 Helgihald Messa kl. 11

Prestur: sr. Gunnar Sigurjónsson

 

17.05.2010, kl.19:00 Meme movie Örverkefni II

Klippum örverkefnið.
 

21.05.2010 - 23.05.2010 Meme movie Kaldárselsferð MEME

Nánar auglýst síðar.
 

23.05.2010, kl.11:00 Helgihald Hvítasunnudagur

Hátíðarmessa kl. 11

Prestur: sr. Magnús Björn Björnsson
 

24.05.2010, kl.20:00 Helgihald Annar dagur hvítasunnu

Mótorhjólamessa kl. 20

Annar í hvítasunnu Mótorhjólamessa kl. 20 Mótorhjólamessan er árlegur viðburður þar sem hinir ýmsu mótorhjólaklúbbar ríða fákum sínum í fylkingum til Digraneskirkju. Sjaldan koma svo mörg vélhjóla saman á einum stað svo almenningi gefst tækifæri á því að skoða fákana og spjalla við ökumenn þeirra. Messan er ALVÖRU messa, með prédikun og altarisgöngu, svo það er ekkert slegið af í helgihaldinu, þó svo umbúnaðurinn sé sveipaður léttleika og prestarnir (sem verða að vera mótorhjólafólk) eru búnir sama klæðnaði og viðbúið er af vélhjólafólki (hefðbundnum öryggisbúnaði vélhjólamanna). Leður og Goretex er því "viðeigandi" klæðnaður. Mótorhjólamessan er einnig samstarfsverkefni Þjóðkirkju og Hvítasunnu og hafa prestar frá báðum þessum kirkjudeildum annast um helgihald. Það er stórkostlegt að sjá svo fjölbreytilegan söfnuð koma saman til helgihalds og ekki spillir nú fyrir að þetta minnir líka á það að við erum líka til í samfélaginu og umferðinni. Mótorhjólamessan tekur mið af ýmsum hefðum sem skapast hafa í "mótorhjólaheiminum", bæði hvað varðar tónlist og annað. Hún er því nokkuð "hrá" og gæti farið fyrir brjóstið á þeim sem leitast eftir hefðbundnara helgihaldi. Mótorhjólamessan hófst í Digraneskirkju árið 2006 þegar 115 manns komu til messu á 55 vélfákum. Mótorhjólamessunni hefur aukist fylgi milli ára. Arið 2007 komu 240 manns á 170 hjólum. Arið 2008 yfirfylltist kirkjan (sem tekur 320 manns) með 380 riddurum götunnar á 230 fákum. Árið 209 komu 402 hjólamenn og konur á 240 hjólum. Bílar eru EKKI velkomnir á efra bílastæði kirkjunnar meðan á mótorhjólamessu stendur.
 

30.05.2010, kl.11:00 Helgihald Messa kl. 11

Prestur: sr. Gunnar Sigurjónsson

 



« maí 2010 »
smþmffl
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica cmscms - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.