Messa kl. 11
Prestur: sr. Magnús Björn Björnsson
Sundfundur
Smellum okkur í sund svona þegar sumarið nálgast eins og óð fluga.
Messa kl. 11
Prestur: sr. Yrsa Þórðardóttir
Tómasarmessa í Grensáskirkju kl. 20
Mæðradagurinn
Örverkefni I
Tökum upp eitt örstutt verkefni fyrir sumarið.
Fornbílamessa
Uppstigningardagur 13. maí kl. 20
"Kirkjudagur aldraðra bíla". Fornbílaklúbburinn kemur á gömlum bílum sem stillt verður upp á bílaplani kirkjunnar. Hefðbundin guðsþjónusta verður í Digraneskirkju kl. 20 þar sem Kjartan Sigurjónsson, organisti leikur á orgelið, Einar Clausen syngur í einsöng Vegaljóð (Áfram veginn í vagninum ek ég). sr. Gunnar Sigurjónsson leiðir guðsþjónustuna. Eftir guðsþjónustu býður Fornbílaklúbburinn upp á kaffi og jafnvel einhverjar veitingar og félagar í klúbbnum deila með viðstöddum upplýsingum um bíla sína sem verða til sýnis af þessu tilefni. Allir eru velkomnir.
Messa kl. 11
Prestur: sr. Gunnar Sigurjónsson
Örverkefni II
Klippum örverkefnið.
Kaldárselsferð MEME
Nánar auglýst síðar.
Hvítasunnudagur
Hátíðarmessa kl. 11
Prestur: sr. Magnús Björn Björnsson
Annar dagur hvítasunnu
Mótorhjólamessa kl. 20
Annar í hvítasunnu Mótorhjólamessa kl. 20
Mótorhjólamessan er árlegur viðburður þar sem hinir ýmsu mótorhjólaklúbbar ríða fákum sínum í fylkingum til Digraneskirkju. Sjaldan koma svo mörg vélhjóla saman á einum stað svo almenningi gefst tækifæri á því að skoða fákana og spjalla við ökumenn þeirra.
Messan er ALVÖRU messa, með prédikun og altarisgöngu, svo það er ekkert slegið af í helgihaldinu, þó svo umbúnaðurinn sé sveipaður léttleika og prestarnir (sem verða að vera mótorhjólafólk) eru búnir sama klæðnaði og viðbúið er af vélhjólafólki (hefðbundnum öryggisbúnaði vélhjólamanna). Leður og Goretex er því "viðeigandi" klæðnaður. Mótorhjólamessan er einnig samstarfsverkefni Þjóðkirkju og Hvítasunnu og hafa prestar frá báðum þessum kirkjudeildum annast um helgihald. Það er stórkostlegt að sjá svo fjölbreytilegan söfnuð koma saman til helgihalds og ekki spillir nú fyrir að þetta minnir líka á það að við erum líka til í samfélaginu og umferðinni.
Mótorhjólamessan tekur mið af ýmsum hefðum sem skapast hafa í "mótorhjólaheiminum", bæði hvað varðar tónlist og annað. Hún er því nokkuð "hrá" og gæti farið fyrir brjóstið á þeim sem leitast eftir hefðbundnara helgihaldi.
Mótorhjólamessan hófst í Digraneskirkju árið 2006 þegar 115 manns komu til messu á 55 vélfákum. Mótorhjólamessunni hefur aukist fylgi milli ára. Arið 2007 komu 240 manns á 170 hjólum. Arið 2008 yfirfylltist kirkjan (sem tekur 320 manns) með 380 riddurum götunnar á 230 fákum. Árið 209 komu 402 hjólamenn og konur á 240 hjólum.
Bílar eru EKKI velkomnir á efra bílastæði kirkjunnar meðan á mótorhjólamessu stendur.

