Ferming
Fermingar 2011

Fermingarfræðsla fer fram sem hér segir: (með fyrirvara um stundatöflu skólanna)
| Þriðjudagar | kl. 14 | |
| Þriðjudagar | kl. 15 | |
| miðvikudagar | kl. 14 | |
| miðvikudagar | kl. 15 | |
| miðvikudagar | Kl. 16 |
ATH:***Fyrirvari er á fræðsludögum þar til stundatöflur skólanna hafa verið endanlega ákveðnar***
Kennsla hefst 7. og 8. september eftir ofangreindri stundatöflu
Fermt verður:
Kópavogsskóli, 8-N, Pálmasunnudagur, 17. apríl kl. 10
Digranesskóli, Pálmasunnudagur, 17. apríl. kl. 12
Kópavogsskóli, 8-S, Pálmasunnudagur, 17. apríl kl. 14
Smáraskóli 8-1, Skírdagur, 21. apríl kl. 11
Smáraskóli 8-2, Skírdagur, 21. apríl kl. 14
Valkostur er um fermingu á annan páskadag, 25. apríl kl. 11.
Kennslubókin „Líf með Jesú” og messubókin „KIRKJU LYKILL” fást í bókabúðum t.d. Bókabúðinni við Hamraborg og Kirkjuhúsinu við Laugaveg 31.
Einnig verður kennt nýtt fermingarfræðsluefni: "Nýja kverið" sem er kennsluefni til reynslu í DvD formati sem sr. Gunnar og sr. Guðmundur (í Lindakirku) eru að semja.
Messubókina þurfa nemendur að kaupa nýja því þau fylla hana út með þátttöku í helgihaldi kirkjunnar. Skilyrt er að þau ljúki 10 verkefnum á fræðslutímanum og er þess óskað að foreldrar aðstoði þau við það í messum.
Þess er vænst að foreldrar fermingarbarna mæti til skrafs og ráðagerða eftir að kennsla hefst og munu fermingarbörn færa boð um það skriflega. Þá verður rætt um fermingardaga og nánari tilhögun.
Ef fermingarbarn getur ekki komist á þriðjudegi í tíma má það koma í tíma miðvikudagsins og öfugt.
Fermingarbarnaferðalagið:
Fermingarbörnum gefst kostur á að fara í ferðalag í Vatnaskóg. (kr. 4000)
Smáraskóli fer 2-3. nóvember og Kópavogs- og Digranesskóli fara 11-12. nóvember.
Farið er frá Digraneskirkju á þriðjudegi kl. 13 og komið aftur að kirkjunni miðvikudagskvöldið kl. 21.
Fyrsti fundur með foreldrum og forráðamönnum fermingarbarna er 16. september.
Foreldrar fermingarbarna Kópavogs- og Digranesskóla er kl. 20, Smáraskóla kl. 21.

