Home > Athafnir > Ferming

Ferming

Fermingar 2012

Fermingarfræðsla 2011-2012

Upplýsingar til fermingarbarna og foreldra

Boðið er upp á námskeið fyrir fermingarbörnin í lok ágústmánaðar 2011, dagana 15. til 18. ágúst, alls fjóra virka daga. Að auki mæta börnin einu sinni í mánuði um vetrartímann, tvo tíma í senn. Ágústnámskeiðið fer fram fyrir og eftir hádegi og verður hópnum skipt upp sem hér segir:

Fermingarbörn úr Kópavogsskóla og Álfhólsskóla mæta kl. 9-12.
Fermingarbörn úr Smáraskóla mæta kl. 13-16.

Þau börn sem ekki vilja né hafa tök á að taka þátt í umræddu námskeiði í ágústmánuði munu hefja fræðsluna í september og vinna upp það sem ágústhóparnir unnu. Síðan mun sá hópur sameinast hinum í október. Upplýsingar þar um verða tilkynntar með tölvskeyti (netföng sem tilgreind eru við skráningu). . Nánari fræðsluáætlun um námskeiðið verður sett á netið er nær dregur.

 

 

Fermingarfræðsla fer fram sem hér segir: (með fyrirvara um stundatöflu skólanna)

Kópavogsskóli 8-X Miðvikudagarnir
12. okt, 19. okt,
16. nóv, 7. des og 14. des.
kl. 14
Kópavogsskóli 8-Y
og Álfhólsskóli
Fimmtudagarnir
13. okt, 20. okt,
17. nóv, 8. des og 15. des
kl. 15
Smáraskóli 8-SGK Miðvikudagarnir
12. okt, 19. okt,
16. nóv, 7. des og 14. des.
kl. 15
Smáraskóli 8-SSL Miðvikudagarnir
12. okt, 19. okt,
16. nóv, 7. des og 14. des.
kl. 16

ATH:***Fyrirvari er á fræðsludögum þar til stundatöflur skólanna hafa verið endanlega ákveðnar***

Kennsla hefst 12. og 13. október eftir ofangreindri stundatöflu

Starfsárið 2011-2012 verður boðið upp á sérstakt haustnámskeið mánudag til fimmtudags, 15.-18. ágúst milli kl. 10-16.
Þau fermingarbörn sem geta tekið þátt í því þurfa að tilgreina það við skráningu.

Fermt verður:
Kópavogsskóli, 8-X , Pálmasunnudagur, 1. apríl kl. 11
Kópavogsskóli, 8-Yog Álfhólsskóli, Pálmasunnudagur, 1. apríl kl. 14

Smáraskóli 8-K, Skírdagur, 5. apríl kl. 11
Smáraskóli 8-N, Skírdagur, 5. apríl kl. 14

Valkostur er um fermingu á annan páskadag, 9. apríl kl. 11.

Kennslubókin „Líf með Jesú” og messubókin „KIRKJU LYKILL” fást í bókabúðum t.d. Bókabúðinni við Hamraborg og Kirkjuhúsinu við Laugaveg 31.
Einnig verður kennt nýtt fermingarfræðsluefni: “Nýja kverið” sem er kennsluefni til reynslu í DvD formati sem sr. Gunnar og sr. Guðmundur (í Lindakirku) eru að semja.

Messubókina þurfa nemendur að kaupa nýja því þau fylla hana út með þátttöku í helgihaldi kirkjunnar. Skilyrt er að þau ljúki 10 verkefnum á fræðslutímanum og er þess óskað að foreldrar aðstoði þau við það í messum.

Þess er vænst að foreldrar fermingarbarna mæti til skrafs og ráðagerða eftir að kennsla hefst og munu fermingarbörn færa boð um það skriflega. Þá verður rætt um fermingardaga og nánari tilhögun.

Ef fermingarbarn getur ekki komist á miðvikudegi í tíma má það koma í tíma fimmtudagsins og öfugt.
Fermingarbarnaferðalagið:
Fermingarbörnum gefst kostur á að fara í ferðalag í Vatnaskóg. (kr. 6000 )
Álfhólsskóli fer með fermingarbörnum Hjallakirkju 8. til 9. september. Farið er frá Hjallakirkju á fimmtudegi kl. 08 og komið aftur að kirkjunni föstudegi kl. 14.30.
Smáraskóli og Kópavogsskóli fara 15. -16. september. Farið er frá Digraneskirkju á fimmtudegi kl. 08 og komið aftur að kirkjunni á föstudegi kl. 14.30

Fyrsti fundur með foreldrum og forráðamönnum fermingarbarna er 22. september.
Foreldrar fermingarbarna Kópavogs- og Álfhólsskóla mæti kl. 20 en Smáraskóla kl. 21.

Hver er kostnaðurinn?

  • Fermingarfræðslan allan veturinn kostar kr. 9.300 sem greiðist í upphafi fræðslunnar.
  • Námsgögn svo sem eins og kennslubókin “Líf með Jesú” og “Kirkjulykillinn” sem fást í bókabúðum og Kirkjuhúsinu á Laugarvegi (verð fæst uppgefið í bókabúðum).  Kennslubókina “Líf með Jesú” má nota frá fyrri árum og þarf því ekki að kaupa nýja. Stílabók sem fermingarbörnin vinna verkefni úr kennslubókinni eða prenta úr tölvu og halda til haga í möppu.
  • Ferðalag fermingarbarna í Vatnaskóg kostaði á síðasta ári kr.  12.000 en hlutur fermingarbarns var kr. 6.000 (söfnuðurinn og héraðssjóður prófastsdæmisins greiða hinn hlutann). Greiðist við brottför frá kirkjunni og er afhent Skógarmönnum í Vatnaskógi.  (Innifalin er rúta, matur,  og fræðsla frá starfsmönnum Vatnaskógar og kirkjunnar).
  • Kyrtilgjald vegna fermingar er kr. 1.000 sem greiðist  á æfingu fermingarbarna fyrir fermingu. (Kyrtilgjaldið er leiga og stendur undir hreinsun og endurnýjun kyrtlanna).