Safnaðarsalur
Safnaðarsalurinn er á efri hæð og tekur með góðu móti 116 manns í sæti. Hann er gjarnan leigður fyrir skírnarveislur, brúðkaup og erfidrykkjur.
Reglur um notkun salarins:
- Reykingar eru stranglega bannaðar.
- Neysla áfengis er bönnuð, nema við brúðkaupsveislur, þá er leyft að skála í freyðivíni.
- Ef tjón verða á munum kirkjunnar, þarf leigutaki að greiða fyrir það tjón.
- Safnaðarsalurinn er leigður á kr. 35.000
- Notkun á skjávarpa kostar kr. 5.000
- Greiða þarf sérstaklega fyrir laun húsmóður
- Greiða þarf fyrir hreinsun á dúkum, ef þeir eru notaðir, kr. 500 pr/dúk
- Gæta skal góðrar umgengni í hvívetna
- Ef börn eru meðal gesta, skal séð til þess að þau séu ekki eftirlitslaus að leik á göngum og í stiga kirkjunnar!
- Gengið skal frá greiðslum eigi seinna en tveim vikum eftir notkun salarins.
Kapella og fræðslusalur
Kapellan er á neðri hæð og er notuð fyrir helgihald og samverustundir á veturna.
Þar fer fram fermingarfræðslan og barna- og æskulýðsstarf ásamt ýmsum öðrum safnaðarþáttum.
Tengt kapellunni er lítill hliðarsalur sem við köllum fræðslusal. Þetta er leigt saman.
Kapellan er hentug fyrir ráðstefnur og fundi og tekur uþb. 100 manns í sæti.
Þar er öflugur skjávarpi og breiðtjald.
Reglur um notkun kapellunnar:
- Reykingar eru stranglega bannaðar.
- Neysla áfengis er bönnuð
- Ef tjón verður á munum, þarf leigutaki að greiða fyrir það tjón.
- Kapellan er leigð á kr. 35.000
- Notkun á skjávarpa kostar kr. 5.000
- Gæta skal góðrar umgengni í hvívetna
- Gengið skal frá greiðslu eigi síðar en tveim vikum eftir notkun.
- Ef börn eru meðal gesta, skal séð til þess að þau séu ekki eftirlitslaus að leik á göngum og í stiga kirkjunnar.


