Páskar

Frá Skírdegi til Páskasólar

Trúarlegt ferđalag í helgihaldi Digraneskirkju

SkírdagurPáskavaka 2008

er dagur seinustu kvöldmáltíđarinnar og ţví tilhlýđilegt ađ söfnuđurinn komi saman um kvöldiđ kl. 20 til ţess ađ eiga samfélag um borđ Guđs. Altarissakramentiđ verđur fram boriđ međ sérbökuđu ósýrđu brauđi og bergt af sameiginlegum kaleik.

Föstudagurinn langi

Fyrirlestur er ađ venju kl. 14 í kapellu á neđri hćđ.
Um kvöldiđ kl. 20 er passíuguđsţjónusta. Prestur syngur litaníuna ásamt kór Digraneskirkju.
Litanían minnir okkur á píslardauđa og krossfestingu Krists.   Lesnir eru ritningartextar passíunnar og kór Digraneskirkju syngur passíusálma milli lestra.
 Passíuguđsţjónustunni lýkur međ ţví ađ kirkjan verđur myrkvuđ og íhugun ţagnarinnar tekur viđ.  
Organisti: Kjartan Sigurjónsson.  

Ađfangadag páska kl. 22 er Páskavaka.Páskavaka 2008

Hátíđahöld páskanna eru elsta kristna guđsţjónustugerđ sem ţekkt er í kirkjunni og á uppruna sinn í Jerúsalem á 1. öld, í kirkju postulanna.   Textar vökunnar eru ţá ađ mestu leyti fullmótađir en vakan í heild sinni fullmótuđ á 2. öldinni. 

Hún er ţví ein elsta kristna guđsţjónustugjörđ sem ţekkt er. 

Safnast var saman til guđsţjónustunnar eftir sólarlag, en ţá hófst nýr dagur samkvćmt tímatali Gyđinga og vakađ fram ađ árrođa páskamorguns. 

Á 2. öld var sú stefna orđin ríkjandi ađ ţeir sem vildu skírast til kristinnar trúar og tilheyra kirkjunni létu gera ţađ á páskavökunni ađ undangenginni frćđslu.  Páskavaka 2008

Ritningartextar á vökunni voru ţví eins konar lokafrćđsla trúnemanna.  Eftir upprifjun hjálprćđissögunnar í lestrunum voru ţeir skírđir og gengu ađ ţví loknu til páskamáltíđarinnar (heilagrar kvöldmáltíđar) sem fullgildir í samfélagi kirkjunnar.

    Jóhannes guđspjallamađur nefnir Jesú Krist “ljós heimsins”.  Af ţeirri hefđ spratt sá siđur ađ tendra nýjan eld á vökunni og kveikja á páskakertinu sem tákn um nćrveru Jesú Krists, hins upprisna Drottins, sem lýsir myrkri veröld.  Orđ og athafnir páskavökunar eru full af táknum, sum auđskilin, önnur krefjast nokkurrar ţekkingar og íhugunar.  (Páskavaka útg. af síra Sigurđi Sigurđarssyni vígslubiskupi í Skálholti).

Páskavakan hefst kl. 22 viđ eldstćđi fyrir utan Digraneskirkju.Páskavaka 2008

Páskavakan skiptist í fjóra meginţćtti:

1. Ţjónusta ljóssins - blessun hins nýja elds

2. Ţjónusta orđsins - ritningarlestrar

3. Heilög skírn (endurnýjun skírnarheitsins)

4. Messan

Hér má sjá fleiri myndir frá páskavökunni 2008 sem Jón Svavarsson ljósmyndari tók.

Páskahátíđin hefst ađ morgni páskadags kl. 8

Sungin verđur hátíđarmessa sr. Bjarna Ţorsteinssonar. 
Einsöngvarar syngja tónverkiđ Páskadagsmorgunn eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson sem lýsir ţví ţegar konurnar koma áhyggjufullar ađ gröf frelsarans og finna hann ekki heldur fćra heiminum ţann gleđibođskap ađ Kristur sé upprisinn.Páskavaka 2008

 Eftir messu verđur morgunmatur í safnađarsal og er mćlst til ţess ađ safnađarfólk komi međ eitthvađ međlćti međ sér.   Húsmóđir kirkjunnar hitar kaffi, te og heitt súkkulađi og býđur rúnnstykki ţar ađ auki. 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 



ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíđu eplica.