Digraneskirkja

Digranessókn

Við erum stór söfnuður fólks sem býr í miðhluta Kópavogs og tilheyrir hinni íslensku þjóðkirkju.
Við erum lútersk-evangelískt trúfélag sem byggir á fornri og lifandi hefð í nútíma samfélagi.
Við trúum á Guð eins og Jesús Kristur opinberar okkur hann samkvæmt játningum hinnar lútersku kirkjudeildar.
Lesa meira
 

Höklarnir

Á meðan Digraneskirkja var í smíðum gripu sóknarnefnd, prestur og mörg sóknarbörn í vefinn og fylgdust þannig með því þegar þrír messuskrúðar urðu til frá 19. júlí til 23. september 1994. Vinnan fór fram á vinnustofu Guðrúnar Vigfúsdóttur og stjórnaði hún verkinu.

Lesa meira
 

Orgel Digraneskirkju

Orgel Digraneskirkju er byggt á Íslandi, hið fyrsta sinnar tegundar af sinni stærð, og var vígt um leið og kirkjan 1994.
Björgvin Tómasson orgelsmiður byggði þetta hljóðfæri sem telur 19 sjálfstæðar raddir og raddval er tölvustýrt þannig að mögulegt er að geyma í minni orgelsins 192 blæbrigði sem hægt er að kalla fram á þægilegan máta. Lesa meira
 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.