Fréttir

Safnaðarfundur um staðfesta samvist

27.2.2007

Eftir messu sunnudaginn 11. mars, eða kl. 12:30, verður safnaðarfundur í Digraneskirkju. Efni hans er: Samtal við söfnuðinn um staðfesta samvist samkynhneigðra, þjóðkirkjuna og drög að formi fyrir blessun staðfestrar samvistar frá Helgisiðanefnd Þjóðkirkjunnar.

Markmiðið er að fá að heyra hvað Digranessöfnuður hefur að segja um ofangreint málefni.

Í messunni kl. 11 mun sr. Gunnar Sigurjónsson, sóknarprestur, fjalla um málið. Eftir messu mun fundargestum boðið að fá súpu og brauð. Sr. Magnús Björn Björnsson mun stjórna fundinum.

Þjóðkirkjan hefur undanfarin ár fjallað um hvernig afgreiða eigi blessun staðfestrar samvistar. Á prestastefnu 2006 gaf biskup leyfi í eitt ár til að nota form til að blessa staðfesta samvist samkyhneiðra í kirkju. Drög að þessu formi frá Helgisiðanefnd þjóðkirkjunnar, Blessun staðfestrar samvistar, má finna hér á síðunni. Hér á síðunni er einni að finna drög að ályktun kenningarnefndar, Þjóðkirkjan og staðfest samvist. Í því skjali er dregið saman hver eru meginviðfangsefni í umræðunni innan kirkjunnar, ályktun þjóðkirkjunnar og að lokum verkferlið sjálft. Hér á síðunni má einnig finna ítarefni sem er á vefsíðu kirkjunnar, kirkjan.is/samkyhneigdogkirkja.

Kirkjuþing 2006 samþykkti að drögum kenningarnefndar yrði fylgt eftir og þau send til sókna og stofnana kirkjunnar til umræðu og viðbragða. Ræða á málin innan prófastsdæma, á héraðsfundum, á leikmannastefnu 2007 og annars staðar á vettvangi kirkjunnar. Málið kemur svo til afgreiðslu á Prestastefnu 2007 og að lokum á Kirkjuþingi 2007.

Hér eru skjölin sem vitnað er í hér að ofan og vefsíða Þjóðkirkjunnar um samkynhneigð og kirkju:

Blessun_stadfestrar_samvistar

Tjodkirkjan_og_stadfest_samvist

Vefsíða Þjóðkirkjunnar: http://kirkjan.is/samkynhneigdogkirkja



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.