Fréttir

Messa og sunnudagaskóli á sunnudaginn 15.apríl kl. 11. Kvöldmessa kl. 20

Fyrsti sunnudagur eftir páska

10.4.2007

Nú eru fermingar afstaðnar og páskarnir liðnir. Fermd voru um 120 ungmenni. Við óskum þeim innilega til hamingju. Þau voru bæði falleg og einlæg í hvítu kirtlunum. Á sunnudaginn verður messa kl. 11. Prestur er sr. Magnús Björn Björnsson. Organisti er Bjarni Jónatansson. Kór Digraneskirkju sem hefur staðið sig með mikilli prýði um páskana syngur. Á neðri hæð kirkjunnar verður sunnudagaskólinn á sama tíma. Þar stýrir hún Anna Arnardóttir, æskulýðsfulltrúi ásamt frábæru starfsfólki. Kvöldmessa verður svo kl. 20. Þar verður tónlistin með gospelbrag. Tekið er á móti bænaefnum og boðið upp á fyrirbænastund.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.