Fréttir

Frá kór Digraneskirkju

Vetrarstarfið endar með utanlandsferð

29.8.2007

Vetrarstarf kórsins hefst miðvikudaginn 12.september.kl.20.00.Auk venjulegra starfa kórsins svo sem messusöngs og metnaðarfullrar dagskrár á aðventukvöldi er fyrirhuguð ferð til Kanada í byrjun júní 2008.

Um er að ræða tónleikaferð, þar sem kórinn heldur sérstaka tónleika, heimsækir söfnuð, syngur við messu og kemur fram á samkomu í Gimli 17. júní. Sú hugmynd hefur komið fram að þóknunin fyrir messusönginn renni í sérstakan sjóð, til að niðurgreiða kostnaðinn. Einnig verður leitað styrkja. Nýir kórfélagar verða raddprófaðir 10. og 11. september eftir samkomulagi við organistann Kjartan Sigurjónsson, sími 5541620/8983050. Æfingar eru á miðvikudagskvöldum kl.20 –22. Messuskylda er annan hvern sunnudag A og B hópar.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.