Fréttir
Ungir gestir hlusta á sögu
Útiguðsþjónusta á degi barnsins
Sunnudaginn 25. maí var dagur barsins haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn. Af því tilefni var haldin útiguðsþjónusta í Digraneskirkju þar sem sunnudagaskólinn var alls ráðandi. Veðrið lék við kirkjugesti sem gátu tyllt sér í grasið og notið veðurblíðunnar. Eftir guðsþjónustuna voru grillaðar pylsur, boðið var upp á hoppukastala, leiki og andlitsmálun. Þá var Meme senior á staðnum með sjoppu sem m.a. seldi Candy floss.
Að lokum var nýjasta mynd æskulýðsfélagsins, Lífsins Lengsta Nótt, sýnd við góðar undirtektir. Myndir frá deginum er að finna hér á vefnum.

