Fréttir

Hádegisalfa í Gullsmára

Hefst með hádegisverði miðvikudaginn 28. janúar kl. 11.30

21.1.2009

Alfa námskeið verður í Félagsheimilinu Gullsmára 9. Það hefst miðvikudaginn 28. janúar kl. 11.30. Sr. Magnús Björn Björnsson, prestur í Digraneskirkju, mun leiða námskeiðið. Eftir sameiginlegan málsverð er fyrirlestur út frá ákveðinni spurningu, en að lokum eru hópumræður. Námskeiðið er endurgjaldslaust en þátttakendur greiða sjálfir matinn.

Þetta er í þriðja sinn sem boðið er upp á Alfa námskeið í samvinnu við Félagsstarf eldri borgara í Kópavogi. Alfa námskeiðin eru afar vinsæl, því þau gefa þátttakendum frelsi til að velta fyrir sér tilgangi lífsins í samhengi kirkjunnar. Á Alfa nálgast menn grundvallarspurningar lífsins út frá kristnu sjónarhorni.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.