sr. Magnús Björn Björnsson
- Starfsheiti: prestur
- Vinnusími: 891 9840
Hann er fæddur 27. nóvember 1952. Magnús er kvæntur. Kona hans er Guðrún Dóra Guðmannsdóttir hjúkrunarfræðingur (M.sc) og þau eiga 4 börn, Maríu (1984), tvíburana Sigrúnu Elísu og Guðmann (1988) og Rebekku (1990).
Sr. Magnús vígðist til Seyðisfjarðarprestakalls árið 1979 og var sóknarprestur þar til 1987. Árin 1987-1997 starfaði hann hjá Kristilegu félagi heilbrigðisstétta sem framkvæmdastjóri og svæðisstjóri á Norðurlöndum. Hann var ráðinn prestur í Digranesprestakalli árið 2000. Tímabilið ágúst-desember 2006 þjónaði hann sem sóknarprestur í námsleyfi sr. Gunnars. Sr. Magnús var kjörinn á Kirkjuþing fyrir Reykjavíkurprófastsdæmi Eystra 2006 og var kjörinn í stjórn Prestafélags Íslands árið 2007.
Tímabilið ágúst - desember 2007 var sr. Magnús í námsleyfi. Hann var í meistaranámi við Háskóla Íslands og vinnur að rannsókn sem tengist safnaðaruppbyggingu. Þann tíma leysti sr. Yrsa Þórðardóttir hann af.
GSM: 891 9840

