Næsta sunnudag 7. september mun sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson þjóna fyrir altari og prédika í messunni.  Hann er héraðsprestur Reykjavíkurprófastsdæmis eystra en það er einmitt prófastsdæmið okkar.

Félagar úr kór Digraneskirkju annast messusöng og Gróa Hreinsdóttir er við orgelið.

Sunnudagaskólinn er á sama tíma í kapellu á neðri hæð. Léttar veitingar í hádeginu í safnaðarsal á eftir (kr. 500 -kr. 1000 á fjölskyldu)

3. september 2014 - 13:04

Sr. Gunnar Sigurjónsson