Aldraðir
Kirkjustarf aldraðra í Digraneskirkju
Starfsemi meðal eldri borgara í sókninni hófst þegar eftir vígslu kirkjunnar 25. september 1994.
Opið hús er alla þriðjudaga yfir veturinn frá kl. 11 og fram eftir degi.
Dagskrá þriðjudaga:
| Kl. 11 | leikfimi ÍAK (Íþróttafélag aldraðra í Kópavogi) |
| Kl. 12.00 | Léttur hádegisverður |
| Kl. 13.00 | Helgistund í umsjá presta eða leikmanna |
| Kl. 14.00 | Samverustund þar sem fram fer margþætt menningarstarfsemi ýmist í umsjá eldra hópsins eða gesta sem koma að. |
Á fimmtudögum er einnig leikfimi kl. 11
Heimsótt eru söfn eða skipst á heimsóknum við aðrar kirkjur.
Farnar eru dagsferðir haust og vor.
Umsjónarmaður starfsins er Yrsa Þórðardóttir, prestur
Húsmóðir: Guðbjörg Guðjónsdóttir
Íþróttakennari: Júlíus Arnarsson
Allir eldri bæjarbúar eru hjartanlega velkomnir.

