Home > Starfið > Helgihald

Helgihald

Messur

Messur eru haldnar í Digraneskikju á hverjum sunnudegi kl. 11. Á sama tíma er sunnudagaskóli fyrir börnin í kapellu á neðri hæð. Eftir messu er súpa og brauð í safnaðarsal kirkjunnar.

Kvöldmessur

Yfir vetrartímann eru kvöldmessur í Digraneskikju einu sinni í mánuði. Þær hefjast kl. 20. Í kvöldmessunum er orgelinu og kirkjukórnum gefið frí og hljómsveit æskulýðsfélagsins Meme group sér um tónlistarflutning. Tónlistin er á léttari nótum og því um nokkurs konar poppmessur að ræða.

Bænastundir

Á fimmtudögum kl. 12:00 eru bænastundir í kirkjunni. Hægt er að senda inn bænarefni beint af vefnum