Kór Digraneskirkju
Kór Digraneskirkju var stofnaður nokkru áður en kirkjan var vígð. Hann leiðir safnaðarsöng við helgar tíðir og kemur fram með a.m.k.eitt kórverk í hverri messu. Kórinn telur milli 25 og 30 félaga og er tvískiptur við helgihaldið þannig að félagar syngja að jafnaði við aðra hverja messu.
Kórinn kemur fram á aðventunni með vandaða dagskrá. Hann hefur verið þátttakandi í samsöngvum prófastsdæmisins við flutning stærri verka en slíkt hefur verið á dagskrá annað hvert ár. Kórinn hefur verið þátttakandi í safnaðarferðum og sungið við messuheimsóknir og við slík tækifæri er gjarnan sungin “Deutsche Messe” eftir Franz Schubert.
Kórinn æfir einu sinni í viku á miðvikudagskvöldum kl. 20-22 og oftar ef þurfa þykir.
Stjórnandi kórsins er Zbigniew Zuchowicz organisti.
