Home > Starfið > Lifandi steinar

Lifandi steinar

Lifandi Steinar, námskeið sem eflir samfélag og trú. Það hefst fimmtudaginn 3. febrúar 2012 kl. 19.30 í Digraneskirkju.

Lifandi steinar er námskeið um kristna trú og trúarlegt innihald messunnar. Námskeiðið er sex kvöld frá kl. 19.30-21.30, og laugardagssamvera um mitt námskeiðið. Ekkert kostar á námskeiðið en tekið er á móti framlögum eftir efnum og ástæðum. Nánari upplýsingar má fá hjá sr. Magnúsi Birni Björnssyni magnus@digraneskirkja.is

Markmið Lifandi steina er: · að veita innsýn í guðsþjónustuna, · að skapa samfélag við aðra í söfnuðinum, · að auka trú á eigin möguleika og hlutverk í messunni, · að auka tengsl milli trúar og daglegs lífs, einkum í samskiptum við annað fólk, · að veita hjálp til að vinna með spurningar er vakna um trúna og lífið, · að stuðla að auknum trúarþroska.