
Samfélagið í Digranes- og Hjallakirkju eru samverustundir fyrir fullorðna, góður matur og félagsskapur.
Digraneskirkja – Þriðjudagur 28. apríl kl. 11-14.15
Leikfimi í kapellunni kl. 11, hádegisverður kl. 12. Linda og Stefán bjóða upp á plokkfisk og þrumara.
Gestur okkar að þessu sinni er Rannveig Guðmundsdóttir fyrrverandi stjórnmálakona sem ætlar að
fræða okkur um sögu Kópavogsbæjar.
Kaffi, molar og spjall.
Hjallakirkja – miðvikudagur 29. apríl kl. 12-14
Bænastund, hádegisverður, kaffi, spjall og prjónasamvera.
Digraneskirkja – fimmtudagur 30. apríl kl. 11-12.15
Leikfimi í kapellunn kl. 11, helgistund, léttur hádegisverður og spjall.
Digraneskirkja – föstudagur 1. maí kl. 11
Hugarró og orkuflæði, umsjón hefur Sigurlaug Guðmundsdóttir.
Verið velkomin!
26. apríl 2026 - 18:17
Alfreð Örn Finnsson

