Digranessókn

Að skipulagi þjóðkirkjunnar mynda söfnuðirnir sóknir. Sóknin nær frá Kópavogsgjánni í vestri, er sunnan Nýbýlavegar og nær að Skálaheiði í austri. Smárahvammslandið sunnan Digraneskirkju er allt í Digranessókn.

Hver erum við?

Við erum söfnuðiu fólks sem býr í miðhluta Kópavogs og tilheyrir hinni íslensku þjóðkirkju.
Við erum lútersk-evangelískt trúfélag sem byggir á fornri og lifandi hefð í nútíma samfélagi.
Við trúum á Guð eins og Jesús Kristur opinberar okkur hann samkvæmt játningum hinnar lútersku kirkjudeildar.

Kirkjan okkar

heitit Digraneskirkja. Hún eru í hugum okkar eins og andlegt heimili safnaðarins þar sem við komum saman á gleði- og sorgarstundum. Þar lofum við Guð, tilbiðjum hann, uppfræðumst og eigum heilagt samfélag í trú við hann.

Þar skírum við börnin okkar, þar fermast þau, þar fáum við hjónablessun Kirkjunnar, þar eigum við stefnumót við Jesú Krist og þangað koma okkar nánustu að fylgja okkur seinasta spölinn.

Skipulag safnaðarins

Árlega velur söfnuðurinn á aðalfundi sínum sóknarnefnd sem sér um að halda utan um starfsemi og skipulag kirkjunnar. Hún gerir áætlanir, fylgist með viðhaldi og endurnýjun alls þess sem að kirkjunni okkar viðkemur og passar upp á það að allt sé til reiðu sem söfnuðurinn þarfnast til reksturs kirkjunnar. Sóknarnefndir skipa einstaklingar úr söfnuðinum (aðalmenn og varamenn) og hittast þau mánaðarlega á fundi. Sóknarnefndin velur síðan fólk til ýmissa embætta er varðar starf og starfshætti safnaðarins.

Nokkrar sóknir mynda með sér einingu sem kallast prófastsdæmi. Við erum í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra ásamt söfnuðum Kópavogskirkju, Lindakirkju, Breiðholtskirkju, Seljakirkju, Fella- og Hólakirkju, Grafarvogskirkju, Guðríðarkirkju og Árbæjarkirkju. Árlegur safnaðarráðsfundur eða héraðsfundur presta og kjörinna fulltrúa safnaðanna er samráðsfundur þessara safnaða um innra og ytra skipulag kirkjunnar undir stjórn prófasts.