
Samfélagið í Digranes- og Hjallakirkju eru samverustundir fyrir fullorðna, góður matur og félagsskapur.
Digraneskirkja – Þriðjudagur 5. maí kl. 11-14.15
Leikfimi í kapellunni kl. 11, hádegisverður kl. 12. Á borðum verður Spaghetti Bolognese að hætti Stefáns
og Lindu.
Eftir helgistund flytur Kristín Ingólfsdóttir áhugavert erindi um störf sín hjá Rauða krossinum.
Kaffi, molar og spjall.
Hjallakirkja – miðvikudagur 6. maí kl. 12-14
Bænastund, hádegisverður, kaffi, spjall og prjónasamvera.
Digraneskirkja – fimmtudagur 7. maí kl. 11-12.15
Leikfimi í kapellunn kl. 11, helgistund, léttur hádegisverður og spjall.
Digraneskirkja – föstudagur 8. maí kl. 11
Hugarró og orkuflæði, umsjón hefur Sigurlaug Guðmundsdóttir.
Verið velkomin!

4. maí 2026 - 10:36
Alfreð Örn Finnsson

