Þriðjudaginn 12. maí fórum við í árlega vorferð Samfélagsins.

Fyrst var borðað í golfskálanum í Leirunni. Þaðan fórum við í bíltúr í gegnum Keflavík, Njarðvík, Hafnir og skoðuðum okkur um í Grindavík.

Ferðinni var næst heitið yfir í Voga á Vatnsleysuströnd þar sem við heimsóttum Birgi á Minna-Knarrarnesi og skoðuðum bændakirkjuna hans, Knarrarneskirkju. Þar spilaði Gróa Hreins rútubílstjóri og organisti fyrir okkur á orgelið.

Því næst heimsóttum við Kálfatjörn, þar sem við fengum leiðsögn á vegum Minjafélags Voga um Kálfatjarnarkirkju, gamla skólann og skemmuna. Þar fengum við okkur kaffi og köku í góðum félagsskap heimamanna.

Takk fyrir frábæran vetur, starfsfólk og prestar Digraness- og Hjallakirkju.

 

13. maí 2026 - 10:31

Alfreð Örn Finnsson