Vinsamlega athugið að um helgina verða fermingarmessur og því aðeins breyting á messuhaldi.

Laugardagur 23. maí
▪️ Fermingarmessa kl. 11 – 🟢 Digraneskirkja
Kvartett úr Hljóðfalli, kór Digraness- og Hjallakirkju syngur undir stjórn Helgu Margrétar, organisti er Kristján Hrannar. Prestar kirknanna Alfreð, Helga og Hildur þjóna.

Sunnudagur 24. maí
▪️ Fermingarmessa kl. 11 – 🟡 Hjallakirkja
Kvartett úr Hljóðfalli, kór Digraness- og Hjallakirkju syngur undir stjórn Helgu Margrétar, organisti er Kristján Hrannar. Prestar kirknanna Alfreð, Helga og Hildur þjóna.
▪️ Íþrótta- og sunnudagaskólinn kl. 11 – 🟢 Digraneskirkja
Þrautabraut, leikur, söngur og bænir. Umsjón hafa Tinna Rós og félagar.

Verið öll innilega velkomin!

21. maí 2026 - 12:04

Helga Bragadóttir