Samfélagið í Digranes- og Hjallakirkju eru samverustundir fyrir fullorðna, góður matur og félagsskapur.

Digraneskirkja – Þriðjudagur 29. september kl. 11-14.15

Leikfimi í kapellunni kl. 11, hádegisverður kl. 12 með indverskum blæ, lambakarrý, hrísgrjón og naan brauð.

Eftir helgistund flytja Helga Margrét og Kristján Hrannar lög eftir Björgvin Halldórsson, Gunnar Þórðarson, Magnús Eiríksson og Megas. Alfreð, Helga Margrét, Hildur og Kristján Hrannar fjalla stuttlega um lögin og höfundana á milli laga.

Boðið verður upp á kaffi og bakkelsi.

Hjallakirkja – miðvikudagur 30. september kl. 11-14

Boccia, bænastund, hádegisverður, kaffi, spjall og prjónasamvera.

Digraneskirkja – fimmtudagur 1. október kl. 11-12.15

Leikfimi í kapellunn kl. 11, helgistund, hressing og spjall.

Verið velkomin!

 

27. september 2026 - 19:39

Alfreð Örn Finnsson