
Samvera, stuðningur og styrkur í Digraneskirkju
Undanfarið hafa alvarleg umferðarslys snert samfélagið okkar djúpt og minnt okkur á hversu dýrmætt og brothætt lífið er. Afleiðingar umferðarslysa eru oft þungbærar og snerta fjölskyldur, vini og samfélagið allt.
Fimmtudaginn 12. nóvember, kl. 20:00–21:30, opnar Digraneskirkja dyr sínar fyrir ungmennum, fjölskyldum þeirra og öðrum sem vilja koma saman, eiga stund í ró og finna styrk í samverunni.
Hægt verður að kveikja á kertum til minningar um þau sem hafa látist í umferðarslysum.
Tónlistarfólk kirkjunnar Helga Margrét og Kristján Hrannar flytja nokkur lög, sr. Alfreð Örn leiðir stundina og boðið verður upp á léttar veitingar.
Verum til staðar hvert fyrir annað. Stundum skiptir mestu máli að koma saman, hlusta og finna að við stöndum ekki ein.
Öll hjartanlega velkomin.
9. nóvember 2026 - 09:29
Alfreð Örn Finnsson

