
Samfélagið í Digranes- og Hjallakirkju eru samverustundir fyrir fullorðna, góður matur og félagsskapur.
Digraneskirkja – Þriðjudagur 17. nóvember kl. 11-14.15
Leikfimi í kapellunni kl. 11, hádegisverður kl. 12, pönnusteikt ýsa, lauksmjör og kartöflur.
Eftir helgistund kemur Ársæll Aðalbergsson frá KFUM og K og segir okkur frá Vatnaskógi.
Heitt á könnunni og bakkelsi.
Hjallakirkja – miðvikudagur 18. nóvember kl. 11-14
Boccia, bænastund, hádegisverður, kaffi, spjall og prjónasamvera.
Digraneskirkja – fimmtudagur 19. nóvember kl. 11-12.15
Leikfimi í kapellunn kl. 11, helgistund, hressing og spjall.
Verið velkomin!
15. nóvember 2026 - 13:33
Alfreð Örn Finnsson

