Þann 5. febrúar kl.16:00-18:00 í Digraneskirkju verður haldin rokkmessa með hljómsveitinni Tilviljun, úrslit í spurningakeppni fermingarbarna í Kópavogi, ásamt risaflóamarkaði allra fermingarbarna í Kópavogi.
Með Flóamarkaðnum gefst tækifæri fyrir fermingarbörn og fjölskyldur þeirra að  losa um pláss í geymslum, kössum eða háloftum og bjóða öðrum að kaupa nytja hluti á kostakjörum
Ágóði af flóamarkaðanum mun renna óskiptur til Innanlandsaðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar.

Hlutir sem koma til greina eru bækur, geisla diskar, myndbönd- og mynddiskar, málverk, leikföng, lampar, skrautmunir, eldhúsáhöld, borðbúnaður og svo framvegis.
Einnig eru minni húsgögn, raftæki og vel með farinn fatnaður vel þeginn. Það sem ekki selst á Flóamarkaðnum verður gefið áfram á Nytjamarkað Kristniboðssambandsins í Austurveri.

Ætlast er til að öll fermingarbörnin taki þátt og leggi til að minnsta kosti tvo nytjahluti en þeim skal skilað í fermingartíma 18. og 19 janúar , ef einhver á ekki heimangengt má skila þeim í kirkjuna á skrifstofutíma kl. 10:00-17:00 þriðjudaga til föstudaga.

Munum: Margt smátt gerir eitt stórt og enginn getur hjálpað öllum en allir geta hjálpað einhverjum.
Við minnum ykkur á þetta aftur þegar nær dregur

2. nóvember 2011 - 15:58

Sr. Gunnar Sigurjónsson