Skráning í fermingar 2020 og fermingarfræðslu 2019-2020 er í gangi. Smelltu hér fyrir neðan til að skrá.

Skráning í fermingar og fermingarfræðslu 

Upplýsingar til fermingarbarna og foreldra

Boðið er upp á námskeið fyrir fermingarbörnin í ágúst 2019.

Fermingarfræðslan hefst mánudaginn 12. ágúst. Haustnámskeið vegna fermingarfræðslunnar heldur svo áfram daglega út vikuna, fyrir og eftir hádegi,  mánudaginn 12. ágúst til fimmtudagsins 15. ágúst.

Að auki mæta börnin einu sinni í mánuði um vetrartímann, tvo tíma í senn. Ágústnámskeiðið fer fram fyrir og eftir hádegi og verður sameiginlegt með Hjallakirkju.

Þau börn sem ekki vilja né hafa tök á að taka þátt í umræddu námskeiði í ágústmánuði munu hefja fræðsluna fljótlega eftir áramót og vinna upp það sem ágústhóparnir unnu.
Upplýsingar þar um verða tilkynntar með tölvskeyti (netföng sem tilgreind eru við skráningu).  Nánari fræðsluáætlun um námskeiðið verður aðgengileg í dagskrá.

Börnin koma um það bil mánaðarlega samkvæmt dagskrá.

Fyrsti fundur með foreldrum og forráðamönnum fermingarbarna er sunnudaginn 18. ágúst eftir messu.

21. júlí 2019 - 12:00

Sr. Gunnar Sigurjónsson