Sumarhelgistund verður i Hjallakirkju sunnudaginn 27. júní kl. 11.00. Sr. Helga Kolbeinsdóttir leiðir stundina ásamt Kára Allanssyni og félögum í Karlakórnum Esju. 

Verið hjartanlega velkomin í notalega stund með fallegum og sumarlegum tónum!

Guðspjall sunnudagsins (Matt 7.1-5)
Dæmið ekki svo að þér verðið ekki dæmd. Því að með þeim dómi, sem þér dæmið, munuð þér dæmd verða og með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða. Hví sér þú flísina í auga bróður þíns en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu? Eða hvernig fær þú sagt við bróður þinn: Lát mig draga flísina úr auga þér? Og þó er bjálki í auga þínu. Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns.

 

 

23. júní 2021 - 13:04

Helga Kolbeinsdóttir