Það er vissulega gleðiefni að geta nú hafið safnaðarstarf á nýjan leik! Allt safnaðarstarf sem og helgihald hefur göngu sína að nýju nú á næstu dögum og hlökkum við til að taka á móti ykkur í kirkjunum okkar á nýjan leik.

Nú á sunnudag er messa í Digraneskirkju kl. 11:00 í umsjá sr Sunnu, sr Bolla og sr Helgu. Sísa organisti sér um tónlist ásamt Sigríði Ástu Olgeirsdóttur . Í kjölfar messunnar er fermingarfræðsla (kl. 12:30). Á sama tíma er sunnudagaskóli í kapellu á neðri hæð kirkjunnar í umsjón Söru Lindar og leiðtoga barnastarfs. 

Messa í Hjallakirkju verður kl. 17:00 í umsjá sr Bolla og sr Sunnu. Tónlist í umsjá Matta Sax og lofgjörðarhóps Hjallakirkju.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur í kirkjunum okkar!

Guðspjall sunnudagsins (Matt 17.1-9)
Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes, bróður hans, og fer með þá upp á hátt fjall að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra, ásjóna hans skein sem sól og klæði hans urðu björt eins og ljós. Og Móse og Elía birtust þeim og voru þeir á tali við Jesú. Pétur tók til máls og sagði við Jesú: „Drottinn, gott er að við erum hér. Ef þú vilt skal ég gera hér þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.“
Meðan Pétur var enn að tala skyggði yfir þá bjart ský og rödd úr skýinu sagði: „Þessi er minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á. Hlýðið á hann!“
Þegar lærisveinarnir heyrðu þetta féllu þeir fram á ásjónur sínar og hræddust mjög. Jesús gekk til þeirra, snart þá og mælti: „Rísið upp og óttist ekki.“ En er þeir hófu upp augu sín sáu þeir engan nema Jesú einan.
Á leiðinni ofan fjallið bauð Jesús þeim: „Segið engum frá sýninni fyrr en Mannssonurinn er risinn upp frá dauðum.“

2. febrúar 2022 - 14:02

Helga Kolbeinsdóttir