Alkirkjuráðið og kirkjuleiðtogar í Jerúsalem boða til alþjóðlegs bænadags á morgun 17. október til að „styðja öll þau sem þjást í stríðinu og fjölskyldur þeirra sem hafa orðið fyrir ofbeldi“ segir í yfirlýsingu frá 13. október.

„Auk þess hvetjum við alla aðila til lægja öldurnar til þess að bjarga saklausum borgurum“ segir í yfirlýsingunni þar sem hvatt er til að gera viðeigandi ráðstafanir til að forða yfirvofandi hörmungum á Gaza.

„Landið helga hefur tekið dramatískum breytingum á einni viku“ segir í yfirlýsingunni.

„Við erum nú vitni að nýrri tegund ofbeldis með óréttlætanlegum árásum á óbreytta borgara.“

Þar sem spenna hefur aukist og saklaust fólk geldur hana dýru verði segja kirkjuleiðtogarnir:

„að rýma norður hluta Gaza og biðja 1,1 milljón íbúa – meðal annars fólk úr kirkjudeildum okkar- að flýja til suðurs innan 24 tíma mun aðeins auka þessar hræðilegu hörmungar“

segir í yfirlýsingunni.

„Íbúar á Gaza hafa verið sviptir rafmagni, vatni, eldsneyti, fæðu og lyfja.“

Alkirkjuráðið biður allar aðildarkirkjur sínar og allt góðviljað fólk að sameinast í bæn fyrir friði, til að hjálpa þeim sem þjást og hafa misst ástvini sína.

https://kirkjan.is/frettir/frett/2023/10/16/Alkirkjuradid-og-kirkjuleidtogar-i-Jerusalem-boda-til-althjodlegs-baenadags/

16. október 2023 - 15:21

Alfreð Örn Finnsson