Organisti við Digranes- og Hjallaprestakall

Starf organista við Digranes- og Hjallaprestakall, Kópavogi, er nú laust til umsóknar. Um er að ræða fullt starf og verður ráðið í starfið frá og með 1. ágúst 2025 eða eftir samkomulagi. Organisti hefur forystu um allt tónlistarstarf kirknanna, á gott samstarf við starfsfólk og presta kirknanna og veitir stuðning við annað safnaðarstarf eftir þörfum.

Frekari upplýsingar um starfið veita Tinna Rós Steinsdóttir, ritari sóknarnefndar Digraneskirkju í síma 774-1532 og Andrés Jónsson, formaður sóknarnefndar Hjallakirkju í síma 860-1726.

Umsóknarfrestur er til 8. júní 2025 og skulu umsóknir berast rafrænt á netfangið hjallakirkja@hjallakirkja.is.

Nánari upplýsingar má finna hér

3. júní 2025 - 12:07

Alfreð Örn Finnsson