Samfélagið í Digranes- og Hjallakirkju eru samverustundir fyrir fullorðna, góður matur og félagsskapur.

Digraneskirkja – Þriðjudagur 16. september kl. 11-14.15

Leikfimi í kapellunni kl. 11, hádegisverður kl. 12, boðið verður upp á fiskrétt (Löngu) sem Stefán og Linda matreiða. Kristján Hrannar og sr. Alfreð leiða helgistund.

Halldóra Kristinsdóttir sérfræðingur á handritasafni kemur í heimsókn og flytur fræðandi fyrirlestur.

Hjallakirkja – miðvikudagur 17. september kl. 12-14

Bænastund kl. 12 – hádegisverður, kaffi og spjall – prjónasamvera.

Digraneskirkja – fimmtudagur 18. september kl. 11-12.15

Leikfimi í kapelluni kl. 11, bænastund, léttur hádegisverður og spjall.

Verið velkomin!

15. september 2025 - 10:09

Alfreð Örn Finnsson