Samfélagið í Digranes- og Hjallakirkju eru samverustundir fyrir fullorðna, góður matur og félagsskapur.

Digraneskirkja – Þriðjudagur 23. september kl. 11-14.15

Leikfimi í kapellunni kl. 11, hádegisverður kl. 12, Linda og Stefán bjóða upp á grísapottrétt og hrísgrjón.

Kristján Hrannar og sr. Alfreð leiða helgistund.

Gísli Pálsson, mannfræðingur kemur í heimsókn og flytur fræðandi fyrirlestur.

Hjallakirkja – miðvikudagur 24. september kl. 12-14

Bænastund kl. 12 – hádegisverður, kaffi og spjall – prjónasamvera.

Digraneskirkja – fimmtudagur 25. september kl. 11-12.15

Leikfimi í kapelluni kl. 11, bænastund, léttur hádegisverður og spjall.

Digraneskirkja – föstudagur 26. september kl. 11

Hugarró og orkuflæði, umsjón hefur Sigurlaug Guðmundsdóttir.

Verið velkomin!

22. september 2025 - 14:48

Alfreð Örn Finnsson