
Samfélagið í Digranes- og Hjallakirkju eru samverustundir fyrir fullorðna, góður matur og félagsskapur.
Digraneskirkja – Þriðjudagur 7. október kl. 11-14.15
Leikfimi í kapellunni kl. 11, hádegisverður kl. 12, plokkfiskur og þrumari að hætti Lindu og Stefáns og helgistund.
Árni Árnason betur þekktur sem Ugla tré kemur í heimsókn og skemmtir okkur.
Hjallakirkja – miðvikudagur 8. október kl. 12-14
Bænastund kl. 12, hádegisverður, kaffi, spjall og prjónasamvera.
Digraneskirkja – fimmtudagur 9. október kl. 11-12.15
Leikfimi í kapelluni kl. 11, bænastund, léttur hádegisverður og spjall.
Digraneskirkja – föstudagur 10. október kl. 11
Hugarró og orkuflæði, umsjón hefur Sigurlaug Guðmundsdóttir.
Verið velkomin!
6. október 2025 - 09:42
Alfreð Örn Finnsson