Samfélagið í Digranes- og Hjallakirkju eru samverustundir fyrir fullorðna, góður matur og félagsskapur.

Digraneskirkja – Þriðjudagur 28. október kl. 11-14.15

Leikfimi í kapellunni kl. 11, hádegisverður kl. 12, kjúklingasúpa og nýbakað brauð.

Kaffisopi, góðir molar og helgistund.

Að lokinni dagskrá í kirkjunni um kl. 13 förum við með rútu í heimsókn á Bessastaði.

Hjallakirkja – miðvikudagur 29. október kl. 12-14

Bænastund kl. 12, hádegisverður, kaffi, spjall og prjónasamvera.

Digraneskirkja – fimmtudagur 30. október kl. 11-12.15

Leikfimi í kapelluni kl. 11, bænastund, léttur hádegisverður og spjall.

Digraneskirkja – föstudagur 31. október kl. 11

Hugarró og orkuflæði, umsjón hefur Sigurlaug Guðmundsdóttir.

Verið velkomin!

 

27. október 2025 - 10:26

Alfreð Örn Finnsson