
Digraneskirkja
▪️Allra heilagra messa kl. 11
Kveikjum á kertum og minnumst látinna ástvina. Samkór Kópavogs leiðir sönginn undir stjórn Kristjáns Hrannars, organista. Nemendur úr Tónlistarskóla Kópavogs flytja tónlist. Sr. Alfreð Örn þjónar.
▪️Íþrótta- og sunnudagaskóli kl. 11
Halló-vinur sunnudagaskóli, krakkarnir mega koma í búningi. Þrautabraut, leikur, söngur og bænir. Umsjón hafa Tinna Rós og félagar.
Súpa, grjónagrautur og kaffi eftir stundirnar í safnaðarheimili.
Hjallakirkja
▪️Allra heilagra messa kl. 20
Kveikjum á kertum og minnumst látinna ástvina. Samkór Kópavogs leiðir sönginn undir stjórn Kristjáns Hrannars, organista. Sr. Alfreð Örn þjónar.
Kaffi, djús, molar og samfélag eftir messu.
Verið velkomin í messu!
29. október 2025 - 13:30
Alfreð Örn Finnsson

