Samfélagið í Digranes- og Hjallakirkju eru samverustundir fyrir fullorðna, góður matur og félagsskapur.

Digraneskirkja – Þriðjudagur 9. desember kl. 11-14.15

Leikfimi í kapellunni kl. 11, hádegisverður kl. 12, boðið verður upp á lamb í karrýsósu með hrísgrjónum.

Eftir helgistund förum við í hið árlega Jólabingó, fáum kaffisopa og góða mola.

Hjallakirkja – miðvikudagur 10. desember kl. 12-14

Bænastund kl. 12, hádegisverður, kaffi, spjall og prjónasamvera.

Digraneskirkja – fimmtudagur 11. desember kl. 11-12.15

Leikfimi í kapelluni kl. 11, bænastund, léttur hádegisverður og spjall.

Digraneskirkja – föstudagur 12. desember kl. 11

Hugarró og orkuflæði, umsjón hefur Sigurlaug Guðmundsdóttir.

Verið velkomin!

8. desember 2025 - 09:06

Alfreð Örn Finnsson