
Samfélagið í Digranes- og Hjallakirkju eru samverustundir fyrir fullorðna, góður matur og félagsskapur.
Digraneskirkja – Þriðjudagur 27. janúar kl. 11-14.15
Leikfimi í kapellunni kl. 11. Við breytum aðeins út af vananum og byrjum á helgistund kl.12.
Eftir helgistund verður þorramatur á borðum og við syngjum saman.
Biskup Íslands sr. Guðrún Karls Helgudóttir kemur í heimsókn og segir frá starfi sínu.
Kaffisopi og góðir molar.
Hjallakirkja – miðvikudagur 28. janúar kl. 12-14
Bænastund kl. 12, háegisverður eftir stundina. Kaffi, spjall og prjónasamvera.
Digraneskirkja – fimmtudagur 29. janúar kl. 11-12.15
Leikfimi í kapelluni kl. 11, bænastund, léttur hádegisverður og spjall.
Digraneskirkja – föstudagur 30. janúar kl. 11
Hugarró og orkuflæði, umsjón hefur Sigurlaug Guðmundsdóttir.
Verið velkomin!

25. janúar 2026 - 15:13
Alfreð Örn Finnsson

