
Samfélagið í Digranes- og Hjallakirkju eru samverustundir fyrir fullorðna, góður matur og félagsskapur.
Digraneskirkja – Þriðjudagur 3. febrúar kl. 11-14.15
Leikfimi í kapellunni kl. 11, hádegisverður kl. 12, fiskréttur, hrísgrjón og salat.
Eftir helgistund ætlar Margrét Örnólfsdóttir að segja okkur frá merkiskonu sem barðist í andspyrnuhreyfingu Dana í seinni Heimsstyrjöldinni. Kaffisopi og góðir molar.
Hjallakirkja – miðvikudagur 4. febrúar kl. 12-14
Bænastund kl. 12, háegisverður eftir stundina. Kaffi, spjall og prjónasamvera.
Digraneskirkja – fimmtudagur 5. febrúar kl. 11-12.15
Leikfimi í kapelluni kl. 11, bænastund, léttur hádegisverður og spjall.
Digraneskirkja – föstudagur 6. febrúar kl. 11
Hugarró og orkuflæði, umsjón hefur Sigurlaug Guðmundsdóttir.
Verið velkomin!
1. febrúar 2026 - 13:43
Alfreð Örn Finnsson

