
Eigiði eftir að gifta ykkur en hafið ekki fundið rétta tímann? Leit lokið! 
Laugardaginn 14. febrúar ætlum við í Digranes- og Hjallakirkju að bjóða upp á „drop-in“ giftingar.
Athöfnin er stutt & falleg (u.þ.b. 15 mínútur), organisti spilar eitt lag, í anddyri kirkjunnar verður myndabás, parinu verður boðið að skála í freyðivíni & fá svo örlítinn glaðning með sér heim. Þetta er allt saman ykkur að kostnaðarlausu.
Hvað þurfum við að gera?
1. Senda póst á helgabr@kirkjan.is fyrir 10. febrúar til að taka frá tíma í hjónavígslu.
2. Sækja um könnunarvottorð hjá sýslumanni, hér: https://island.is/um-hjonaband.

3. febrúar 2026 - 22:47
Helga Bragadóttir

