
Samfélagið í Digranes- og Hjallakirkju eru samverustundir fyrir fullorðna, góður matur og félagsskapur.
Digraneskirkja – Þriðjudagur 10. febrúar kl. 11-14.15
Leikfimi í kapellunni kl. 11, hádegisverður kl. 12, lasagne, hvítlauksbrauð og salat.
Eftir helgistund kemur Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri í heimsókn til okkar og fræðir okkur m.a. um
Strandir og segir frá bók sinni Síðasti formaðurinn.
Appelsínukaka og súkkulaðikaka verður í boði með kaffinu.
Hjallakirkja – miðvikudagur 11. febrúar kl. 12-14
Bænastund kl. 12, hádegisverður eftir stundina. Kaffi, spjall og prjónasamvera.
Digraneskirkja – fimmtudagur 12. febrúar kl. 11-12.15
Leikfimi í kapelluni kl. 11, bænastund, léttur hádegisverður og spjall.
Digraneskirkja – föstudagur 13. febrúar kl. 11
Hugarró og orkuflæði, umsjón hefur Sigurlaug Guðmundsdóttir.
Verið velkomin!
9. febrúar 2026 - 09:30
Alfreð Örn Finnsson

