
Samfélagið í Digranes- og Hjallakirkju eru samverustundir fyrir fullorðna, góður matur og félagsskapur.
Digraneskirkja – Þriðjudagur 17. febrúar kl. 11-14.15
Leikfimi í kapellunni kl. 11, hádegisverður kl. 12. Á Sprengidegi verður að sjálfsögðu borið fram
saltkjöt og baunir.
Eftir helgistund kemur sr. Vigfús Bjarni Albertsson í heimsókn. Hann hefur mikla reynslu af
prestsþjónustu á sjúkrahúsum og hefur nýlega gefið út tvær bækur um úrvinnslu sorgar.
Kaffi, spjall og rjómabollur.
Hjallakirkja – miðvikudagur 18. febrúar kl. 12-14
Fiskur á föstu verður á miðvikudögum fram að páskum. Þá fáum við góðan gest og borðum saman
fiskmáltíð.
Miðvikudaginn 18. febrúar hefst fastan með Öskudagsmessa kl. 12.
Eftir messu verður fiskmáltíð og rjómabollur.
Kaffi, spjall og prjónasamvera.
Digraneskirkja – fimmtudagur 19. febrúar kl. 11-12.15
Leikfimi í kapelluni kl. 11, bænastund, léttur hádegisverður og spjall.
Digraneskirkja – föstudagur 20. febrúar kl. 11
Hugarró og orkuflæði, umsjón hefur Sigurlaug Guðmundsdóttir.
Verið velkomin!

15. febrúar 2026 - 19:17
Alfreð Örn Finnsson

