
KÓPASTUND 🦭 – Fjölskyldusamvera og kvöldverður
📅 Þriðjudagur 24. febrúar kl.17:15 í Hjallakirkju.
Síðasta þriðjudag í mánuði bjóðum við upp á skemmtilega stund fyrir fjölskyldur 🥳
Við byrjum á því að syngja saman og fara með Faðir vorið. Í kirkjunni verða svo nokkrar stöðvar þar sem krakkarnir fá tækifæri til að örva sköpunargleðina, lita, föndra o.s.frv. Eftir stundina verður boðið upp á kvöldmat í safnaðarheimilinu.
Verið velkomin!
23. febrúar 2026 - 15:00
Helga Bragadóttir

