Digraneskirkja
▪️ Fjölskyldumessa kl. 11
Í stað hefðbundinnar guðsþjónustu verður fjölskyldumessa í tilefni æskulýðsdagsins.
Hljóðkútar og Hljóðpísl, barnakórar kirknanna, syngja undir stjórn Helgu Margrétar kórstjóra. Kristján Hrannar er organisti – Tinna Rós, Helga og Hildur hafa umsjón.
Súpa, grautur og kaffi eftir stundina í safnaðarheimili.
Hjallakirkja
▪️ Messa með Minecraft tónlist kl. 20
Tónlist úr hinum sívinsæla tölvuleik Minecraft verður í forgrunni í messunni undir stjórn Kristjáns Hrannars organista. Helga Bragadóttir prestur þjónar.
Kaffi, molar og samfélag eftir messu.
Verið innilega velkomin!

25. febrúar 2026 - 20:45

Helga Bragadóttir