
Samfélagið í Digranes- og Hjallakirkju eru samverustundir fyrir fullorðna, góður matur og félagsskapur.
Digraneskirkja – Þriðjudagur 10. mars kl. 11-14.15
Leikfimi í kapellunni kl. 11, hádegisverður kl. 12, Linda og Stefán reiða fram kjötbollur o.fl.
Gestur okkar að þessu sinni er Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Reykjalundar.
Kaffi, molar og spjall.
Hjallakirkja – miðvikudagur 11. mars kl. 12-14
Fiskur á föstu – Helgistund, góður gestur og fiskmáltíð.
Helga Margrét kórstjórinn okkar segir frá verkum sínum og tilurð þeirra.
Kaffi, spjall og prjónasamvera.
Digraneskirkja – fimmtudagur 12. mars kl. 11-12.15
Leikfimi í kapelluni kl. 11, bænastund, léttur hádegisverður og spjall.
Digraneskirkja – föstudagur 13. mars kl. 11
Hugarró og orkuflæði, umsjón hefur Sigurlaug Guðmundsdóttir.
Verið velkomin!

9. mars 2026 - 09:09
Alfreð Örn Finnsson

