Digraneskirkja
▪️ Messa kl. 11
Blá messa í mottumars, við biðjum fyrir baráttunni gegn krabbameini. Félagar úr Karlakór Kópavogs leiða sönginn. Organisti er Kristján Hrannar, Alfreð Örn, prestur þjónar. Messuþjónar taka á móti ykkur kæru vinir ásamt því að annast ritningarlestur og bæn safnaðarins.

▪️ Íþrótta- og sunnudagaskóli kl. 11
Þrautabraut, leikur, söngur og bænir. Umsjón hafa Tinna Rós og félagar.

Súpa, grautur og kaffi eftir stundirnar í safnaðarheimili.

Hjallakirkja
▪️ Messa kl. 20
Blá messa í mottumars, við biðjum fyrir baráttunni gegn krabbameini. Félagar úr Karlakór Kópavogs leiða sönginn. Organisti er Kristján Hrannar, Alfreð Örn, prestur þjónar fyrir altari, Guðrún djákni prédikar.

Kaffi, molar og samfélag eftir messu.

Verið innilega velkomin!

 

11. mars 2026 - 10:30

Alfreð Örn Finnsson